Nú er síðasti dagurinn runninn upp hér í Ölveri.  Dagurinn hefur verið rólegur og góður.  Stelpurnar voru þreyttar í morgun enda búnar að vera á fullu síðan þær komu.  Eftir morgunmat fórum við á Biblíulestur og rifjuðum upp það sem við höfum lært í vikunni og vorum að syngja þegar foringjarnir ruddust inn á okkur og tóku okkur út í íþróttahús.  Þar keppti sigurliðið í brennó við foringjana og að sjálfsögðu sigruðu foringjar.   Keppnin hélt svo áfram þar sem foringjarnir kepptu við allar stelpurnar og sigruðu auðvitað þann leik líka.  Í hádeginu borðuðum við súpu og brauð áður en við fórum í pottinn.  Stelpurnar klæddu sig upp og voru komnar í veisludressið áður en þær drukku kaffi.  Seinnipartinn skelltum við okkur svo í ratleik meðan foringjarnir skreyttu veislusalinn og lögðu á borð.  Verðlaunaafhending var svo fyrir mat þar sem allar þessar flottu og hæfileikaríku stelpur sópuðu til sín verðlaunum.  Fyrir afrakstur í íþróttum, hárgreiðslu, söngvakeppni, mesta draslið o.s.frv.  Kvöldvakan okkar er svo að hefjast þar sem starfsólkið mun fara á kostum með leiktilþrifum sínum og söng.

Við í Ölveri þökkum fyrir ,,lánið“ á stelpunum. Þær eru ofboðslega flottar og duglegar og það gefur okkur mikið að starfa með þeim.  Hlökkum til að sjá þær næsta sumar J

Ölverskveðja

Petra, Agnes, Inga Hrönn, Ingibjörg, Snædís, Unnur Rún, Aníta, Kata og Gilla