ÖlverHin árlega kaffisala Ölvers fer fram næsta sunnudag þann 25. ágúst frá kl. 14-17. Verð fyrir fullorðna er 1500 kr og 500 kr fyrir börn 6-12 ára.

Á kaffisölunni gefst tækifæri á að heimsækja yndislegt umhverfi og húsakost Ölvers, gæða sér á ljúffengum veitingum og styrkja um leið starfsemina þar.

Allir eru hjartanlega velkomnir á kaffisöluna!