Þriðjudagskvöldið 25.mars kl. 20:00 er aðalfundur Ölvers sumarbúða KFUM og KFUK. Fundurinn fer fram á Holtavegi 28 í Æskulýðssalnum á skrifstofunni og almenn aðalfundarstörf fara fram á fundinum.

Allir félagsmenn KFUM og KFUK á Íslandi eru velkomnir en einungis þeir sem hafa greitt félagsgjöldin eru fullgildir félagsmenn og geta greitt atkvæði á fundinum.