Fókusflokkur, dagur 3.

Höfundur: |2018-07-26T19:14:21+00:0025. júlí 2018|
Það var mikil gleði í morgunsárið þegar nýr dagur fagnaði okkur með sólskini, Jibbí!!! 🌞Morgunmatur, fánahylling og Biblíulestur voru á sínum stað og kyrrðarbænin varð ennþá öflugri í dag.  Í hádegismat var grænmetisbuff og cous cous með ljúfengri hvítlaukssóu sem stelpurnar hámuðu í sig, nammi namm!

Eftir hádegismatinn fóru þær í gönguferð niður að á í sól og blíðu…bussluðu og trölluðu eins og sannar Ölversmeyjar  😎🏃

Eftir kaffi var hópnum skipt í þrennt og skiptust þær á að fara á þrjár mismunandi stöðvar – málað frá hjartanu um upplifunina hingað til, gagnræður þar sem tekin var fyrir spurningin „hvað er ég búin að læra um sjálfa mig síðan ég kom í Ölver?“ og þriðja stöðin var kókoskúlugerð og einnig skrifuðu þær og klipptu út, á skapanadi hátt, fallegustu orðin sem þær kunna. Eftir það var farið í pottinn og tvö herbergi eru nú að æfa leikrit fyrir kvöldvökuna. Í kvöld verður svo hefðbundin kvöldvaka með leikritum, söngvum og leikjum og mun dagurinn enda í kósí kaffihúsa stemmingu þar sem þær munu gæða sér á kókoskúlunum og dýrindis heitu súkkulaði og vöfflum. Fleiri fréttir á morgun!

Kær kveðja,

Erla og Kristín 🌺

Deildu þessari frétt

Fara efst