Stuðið á okkur í Ölveri!
Margfaldar Ölversstelpur vöknuðu úthvíldar (fengu að sofa aðeins lengur), fengu morgunmat og kláruðu tiltekt. Umgengnis- og hegðunarkeppnin er í fullum gangi og mikill metnaður hjá stelpunum að standa sig. Þær komu svo í biblíustund þar sem við lögðum sérstaka áherslu á þakklætið. Við fylltum þakklætiskörfuna þar sem að þær þökkuðu fyrir allt það góða í lífi sínu og forstöðukonan fékk tár í augun við að lesa. Þær eru þakklátar fyrir fjölskyldu, vini og gæludýr, hreint loft og öruggt land að búa í, gæsku Jesú sem alltaf passar okkur og það að fá að eyða tíma saman í Ölveri. Yndislegir molar sem við erum þakklátar fyrir að fá að kynnast betur og betur.
Þá var komið að brennókeppni dagsins sem er orðin verulega spennandi og titringur í hópnum að fá að keppa við foringjana. Í hádegismat var boðið uppá kjötbollur, kartöflur og brúna sósu og það féll svo sannarlega í kramið.
Eftir hádegismat fóru stelpurnar í leiki úti á velli áður en þær fengu tíma til að sinna leynivininum sínum en við erum að reyna að kenna þeim að hugsa um hvað þær myndu vilja fá fallegt og gott í sín umslög sem er áskorun fyrir sumar. Það er mikilvægt að átta sig á að það er hugurinn sem gildir og gjafirnar þurfa ekki að vera stórar eða fullkomnar heldur þurfa þær að gleðja.
Í kaffinu voru hinar sívinsælu „Subway“ smákökur, sem eru hættulega góðar, og bláberjamöffins sem stelpurnar elskuðu. Karítas og Halldóra í eldhúsinu eru án efa vinsælustu konurnar í húsinu! Eftir kaffi var komið að lista-stöðvum þar sem herbergin skiptu sér niður á stöðvar. Það var boðið uppá „tie-dye“boli, leiklist í lautinni, danstíma í kvöldvökusalnum og föndur í matsal þar sem þær fengu aðstoð við að hanna föt á dúkkulísur.
Í kvöldmatinn var grjónagrautur og nýbakað brauð, hygge-matur af bestu gerð. Fjallaver sá um skemmtiatriði á kvöldvökunni og ekkert slegið af í metnaðinum frekar en fyrri daginn. Eftir kvöldvöku komum við stelpunum á óvart með kaffihúsakvöldi, heitu súkkulaði og smákökum. Foringjar höfðu brugðið sér í gervi þjóna á frönskum bistro og þjónuðu til borðs. Þær fengu svo að heyra hugleiðingu og kvöldsögu áður en allar fór að pissa, bursta og hátta. Það gekk vel hjá öllum að sofna og fljótlega algjör þögn í húsinu.
Takk fyrir yndislegan Ölversdag,
Ykkar þakkláta forstöðukona
Stella Rún