9. flokkur sumarstarfsins í Ölveri, svokallaður Krílaflokkur, er frábrugðinn öðrum flokkum en þar fá stelpur á aldrinum 6-8 ára að spreyta sig í því að fara að heiman í nokkra daga í traustu og vernduðu umhverfi sumarbúðanna. Fleiri starfsmenn eru á hverja stúlku en aðeins 30 stúlkur geta verið í flokknum í umsjá 8 starfsmanna, auk yngri sjálfboðaliða sem liðka til. Góð reynsla hefur verið af Krílaflokk undanfarin ár og stelpurnar hafa skemmt sér konunglega og nær allar komið aftur í lengri flokka síðar.
9. flokkur er dagana 28.-31. júlí nk. og munu stelpurnar halda af stað í Ölver kl. 11 á brottfarardegi og koma til baka á sama tíma þann 31. júlí. Því koma stelpurnar tímanlega heim fyrir verslunarmannahelgina. Ákveðið hefur verið að lækka verðið úr 22.800 kr í 19.800 kr. Skráning fer fram í þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 5888899.