Í dag rann upp veisludagur í Ölveri og vorum við svo heppnar að veðrið hefur leikið við okkur. Það var því tilvalið að skella sér í pottinn og draga út plastdúk sem stúlkurnar gátu rennt sér á niður í laut. Eftir kaffi, þar sem boðið var upp á súkkulaðibollur og rice kripies kökur, voru allar stúlkurnar búnar að fara í sturtu og fóru að gera sig til fyrir veislukvöldmat og kvöldvöku. Mikil spenna ríkti fyrir kvöldinu og braust út mikill fögnuður þegar ilmur af heimabökuðum pítsum barst um matsalinn. Á kvöldvöku skemmtu starfsfólk Ölvers stelpunum og sýndu stórleik í skemmtilegum og fyndnum leikþáttum. Kvöldið vakti mikla lukku.
Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Á morgun halda stúlkurnar aftur heim á leið eftir vikudvöl í Ölveri. Við vonum svo sannarlega að þær fari heim með góðar minningar héðan. Vikan hefur gengið frábærlega og stúlkurnar verið sjálfum sér og foreldrum til sóma Við kveðjum því yndislegan hóp af flottum, hæfileikríkum og glöðum stúlkum á morgun. Við vonumst svo sannarlega til að sjá þær á næsta ári.
Við, starfsfólk Ölvers, þökkum fyrir okkur.
Við minnum svo á að rútan kemur á Holtaveg 28 klukkan 18:00 á morgun (sunnudag).Þeir foreldrar sem ætla að sækja börn sín í hingað upp í Ölver eru beðnir um að koma tímanlega eða ekki seinna en klukkan 17:00.
Kær kveðja og Guð blessi ykkur,
Sólveig Reynisdóttir