Að venju hófst dagurinn á morgunmat, fánahyllingu og biblíulestri.  Að því loknu voru það hressar og kátar stúlkur sem fóru í brennókeppni dagsins í íþróttahúsinu.

Í hádegismat var boðið upp á pasta.  Þegar allar höfðu borðað nægju sína var farið út og keppt í Furðuleikunum.  Þar var meðal annas keppt í stígvélasparki, breiðasta brosinu, kjötbollukasti, sjómann og fleiru.  Gaman var að fylgast með stelpunum fara um allt Ölverssvæðið og hlátraskollin voru þvílík, að unun var að heyra í þeim.

Úr eldhúsinu barst ilmur af kanillengjum og skinuhornum, sem stúlkurnar fengu í kaffitímanum.  Þegar þær höfðu rétt kyngt birtust inni í matsal persónur sem komu úr Hungurleikamyndunum og nú hófust hinir æsi spennandi Hugurleikar.  Var stúlkunum skipt í 12 lið og til að ganga sem berst í leiknum þurftu þær að sýna útsjónarsemi og samvinnu.  Gríðarlegt fjör var á svæðinu, bæði helgið og grátið en allt endaði vel og voru það þreyttar og sveittar stúlkur sem komu heim í hús þegar leiknum lauk.  Stór hluti hópsins fór í góða sturtu áður en kom að kvöldmat.

Kjúklingaleggir og kartöflubátar voru á boðstólnum í kvöldmatinn og borðuðu þær mjög vel.

Á kvöldvökunni var það Hamraver sem sá um skemmtiatriði og svo var sungið, hlustað á hugleiðingu og kvöldbæn beðið.

Enn og aftur fór að berast ljúffengur ilmur úr eldhúsinu og þegar stúlkurnar gengur niður í matsal tóku á móti þeim prúðbúnir þjónar, sem buðu þær velkomnar á kaffihús með frönskuívafi.  Þar var boðið upp á nýsteiktar vöfflur og heitt kakó, auk þess sem þær hlýddu á lifani tónlist flutta af einum foringjanna í hópnum.

Sælar, saddar, glaðar en þreyttar stúlkur fóru í háttinn um kl.23:30 og það er óhætt að segja að þær hafi all flestar sofnað um leið og þær lögðust af koddann.

Þið eigið frábærar stelpur kæru foreldrar :o)

Starfsfólkið í Ölver

 

Enn fleiri myndir eru komnar á vefinn frá sl.dögum

https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/sets/72157685735360216/