Hér voru allir vaknaðir um kl. 9:00 í gærmorgun og var morguninn með frekar hefðbundnu sniði, morgunmatur, tiltekt, morgunstund og brennó. Á morgunstundinni lærðu stelpurnar meðal annars stafrófið í íslensku táknmáli og geta þær núna flestar ef ekki allar stafað nafnið sitt á táknmáli, sagt góðan dag og takk fyrir, svo fátt eitt sé nefnt.

Eftir hádegismat fóru hópurinn í gönguferð niður að á þar sem stelpurnar fengu að vaða og baða sig í ánni sem og tína ber og njóta sólarinnar. Þar sem veðrið var svo gott var ákveðið að hafa kaffitímann úti í sólinni og fara í nokkra leiki á leiðinni aftur upp í Ölver.
Þegar hópurinn var kominn aftur upp í hús tók við léttur leiklistartími þar sem öllum var úthlutað hlutverk. Hver og einn fékk nafn og starfsheiti til að vinna út frá. Verkefnið var svo að setja sig inn í hlutverkið og búa til stutta baksögu um sína persónu, farið var í ýmsa leiki og æfingar til að koma hópnum af stað með verkefnið.

Eftir kvöldmat þegar það var blásið til kvöldvöku var búið að breyta kvöldvökusalnum og stelpurnar sáu fljótt að það var ekki hefðbundinn kvöldvaka sem beið þeirra… það var komið að því að nota og leika sér aðeins með persónurnar sem þær höfðu skapað fyrr um daginn. Hópurinn fór því næst í leik sem er kallaður „Varúlfur“ en leikurinn reynir mikið á sköpun og samvinnu hópsins. Eftir leikinn var orðið frekar heitt og þungt loft inni í kvöldvökusalnum og var því ákveðið að klára kvöldvökuna niðri við aparólu undir berum himni. Þegar stelpurnar voru búnar að koma sér fyrir við aparóluna og sögustund hafin tók hópurinn eftir því að það var ekki alveg allt eins og það átti að vera, það voru bara tveir starfsmenn sjáanlegir og þeir voru ennþá í búning… var kannski ekki allt búið ennþá? Allt í einu birtust svo ævintýraverur úr skóginum og þær sem hafa komið áður voru fljótar að átta sig á því hvaða leikur var að hefjast… „Hungurleikarnir“ höfðu verið færðir í nýjan búning! Búið var að útbúa framhald af Varúlfsleiknum í formi Hungurleika. Leikurinn reynir fyrst og fremst á samvinnu stelpnanna en þær þurfa að leysa hin ýmsu verkefni í skóginum og hitta hinar ýmsu persónur á leiðinni. Markmið leiksins er að allur hópurinn skili sér í mark og að þær hjálpist að við að leysa ráðgátuna sem er sett fram í upphafssögu leiksins.
Stelpurnar leystu þrautirnar og leikinn með prýði í kvöldsólinni og komu svo inn í kvöldkaffi. Þær voru þreyttar eftir leikinn og voru því fljótar að hátta, þegar allar voru komnar upp í sitt rúm og undir sæng opnaði starfsfólkið inn í öll herbergi, settist á ganginn og söng.

Kveðja úr Ölverssólinni
Alla Rún, forstöðukona

Morgunmatur: Hafragrautur, morgunkorn og súrmjólk
Hádegismatur: Lasagne og salat / Vorrúllur og salat
Kaffi: Pizzasnúðar, jógúrtkaka og djús
Kvöldmatur: Skyr, fersk ber, jarðaberjagrautur, og brauð
Kvöldkaffi: Kex