Dagurinn í dag er heimfarardagur en hann byrjaði með hefðbundnu sniði, morgunverði, fánahyllingu og síðan var pakkað niður í töskurnar. Á biblíulestrinum rifjuðum við upp hvað við höfum lært í vikunni og ræddum um hvað þær tækju með sér heim í veganesti.

Farið var í foringjabrennó þar sem vinningslið brennókeppninnar keppti við foringjana en síðan fengu allar stelpurnar að keppa við starfsfólkið sem erfitt reynist nú að sigra í þessari þjóðaríþrótt hér.

Í hádeginu voru grillaðar pylsur og síðan var farangrinum komið út og að lokum hittumst við á lokastund. Þar fór fram verðlaunahátíð og sungið var Ölverslagið 2019.

Rútan fer héðan kl.15 og verður komin á Holtaveg um kl.16.

Við þökkum fyrir frábæra daga hér í Ölveri og vonumst til að sjá alla að ári.