Ölver ætlar að bjóða upp á leikjanámskeið í annað sinn fyrir börn á aldrinum 6-9 ára sem eru búsett á Akranesi, Borganesi og nánasta umhverfi. Þetta verða sannkölluð ævintýranámskeið í dásamlegu umhverfi og fallegri náttúru.

Rútuferðir verða frá Akraneskirkju kl. 09:00 en foreldrum er einnig frjálst að keyra börnin sín upp eftir og sækja.

Á leikjanámskeiðinu fá börnin hollan og góðan heimilismat sem er eldaður frá grunni í eldhúsinu okkar. Boðið verður upp á ávaxtastund um miðjan morgun og heitan mat í hádeginu og síðan verður kaffitími síðdegis áður en haldið verður heim  kl. 16:30 en áætlað er að rútan verði komin aftur að Akraneskirkju kl.17:00.

Ef foreldrar vilja ræða við forstöðukonu/forstöðumann er hægt að hringja í síma: 433-8860. Símatími er á milli kl. 11:00-12:00 alla virka daga. Vinsamlega athugið að það getur verið erfitt að sækja börnin fyrr eða koma með þau seinna yfir daginn því oft eru allir í göngu eða ævintýraferð langt frá húsinu sem getur leitt af sér að foreldrar grípa í tómt þegar þeir birtast. Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi er best að ræða það við forstöðukonu/forstöðumann í símatíma daginn áður eða samdægurs ef annað gengur ekki.

Fréttir og myndir úr sumarbúðunum eru hér á heimasíðunni og birtast nánast daglega þegar sumarstarfið er í gangi.

Dæmi um dagskrá á leikjanámskeiði

09:30 Börnin koma með rútunni í Ölver
09:00 Samverustund á sal, fræðsla, föndur,  spjall, söngur og bænir
10:00 Morgunhressing
10:30 Dagskrá og/eða frjáls tími
12:00 Hádegismatur
12:30 Dagskrá, gönguferð, heitur pottur eða annað
15:00 Síðdegishressing
15:30 Hópleikir og frjáls tími
16:30 Heimferð

Farangur

Börnin þurfa að hafa meðferðis, hlý föt, góða skó, regnfatnað, stígvél, húfu, vettlinga, auka sokka og auka föt, hlýja sokka og/eða inniskó og sundföt og handklæði en á staðnum er heitur pottur. Allan útifatnað og aukaföt má koma með á mánudegi og geyma fram á föstudag.

Ef spurningar vakna endilega sendið póst á olver@kfum.is