Í dag mættu 47 brosandi unglingsstelpur í Ölver, margar alvanar staðnum en þó nokkrar sem eru að koma í fyrsta skipti.

Stelpurnar byrjuðu á því að koma sér fyrir, allar vinkonur saman í herbergi og hingað til eru allir alsælir með herbergin sín og herbergisfélaga.

Eftir að allir voru búnir að búa um sig og fá sér hádegismat fór allur hópurinn út í leiki þar sem áhersla var lögð á að læra nöfn allra í flokknum. Þar sem við ætlum að búa svona margar saman næstu vikuna langar okkur að geta kallað á hver aðra með nafni og það helst frá fyrsta degi, það hefur gengið vonum framar.

Stelpurnar voru svangar eftir daginn og borðuðu mjög vel í kvöldmatnum, ráðskonunni til mikillar gleði.

Kvöldvakan var með hefðbundnu sniði í kvöld þar sem eitt herbergi sá um skemmtiatriði fyrir hópinn og fékk ágætt lof fyrir, og að sjálfsögðu var einnig mikið sungið líkt og tíðkast á kvöldvökunum hér í Ölveri. Á miðri kvöldvöku tóku stelpurnar hins vegar eftir því að það vantaði stóran hluta af starfsfólkinu. Þær sem eru vanar hér í Ölveri voru fljótar að átta sig á því að þetta var heldur óvanalegt og fóru strax að velta því upp hvort það gæti verið að það vantaði allar bænakonurnar, var hugsanlega að fara af stað eitthver leikur? kannski bænakonuleit? Stelpurnar voru fljótar að hópast í herbergin sín, græja sig og fara út að leita. Herbergin þurftu að leysa einföld verkefni til að komast að því hver af starfsstúlkunum er þeirra bænakona þessa vikuna. Þetta gekk vonum framar og öll herbergi sýndu góða samvinnu.

Stelpurnar voru þreyttar eftir daginn og því komst fljótt ró í húsið.

Bestu kveðjur
Alla Rún, forstöðukona

Hádegismatur: Salatbar með öllu tilheyrandi
Kaffi: Bananabrauð, jógúrtkaka og djús
Kvöldmatur: Mexico fiesta (tortilla með öllu tilheyrandi)
Kvöldkaffi: Epli og matarkex