Í dag mættu 45 hressar og kátar stelpur í Ölver, um helmingurinn vanar staðnum og hinar að koma í fyrsta skipti.

Stelpurnar byrjuðu á því að koma sér fyrir, allar vinkonur saman í herbergi og hingað til eru allir alsælir með herbergin sín og herbergisfélaga.

Þegar allir voru búnir að búa um sig og fá sér hádegismat fór allur hópurinn út í leiki þar sem áhersla var lögð á að læra nöfn allra í flokknum. Þar sem við ætlum að búa svona margar saman næstu vikuna langar okkur að geta kallað á hver aðra með nafni og það helst frá fyrsta degi, það hefur gengið vonum framar.

Eftir kaffitímann voru stelpurnar margar orðnar frekar óþolinmóðar og vildu fá að vita hver af starfsstúlkunum væri þeirra bænakona… forstöðukonan sendi þá herbergin út í smá bænakonuleit, hvert með sínar leiðbeiningarnar, leitin tók dágóða stund en öll herbergi skiluðu sér skælbrosandi og ánægð í hús eftir að hafa fundið sinn foringja.

Stelpurnar voru svangar eftir daginn og borðuðu mjög vel í kvöldmatnum, ráðskonunni til mikillar gleði.

Kvöldvakan var með hefðbundnu sniði í kvöld þar sem eitt herbergi sá um skemmtiatriði fyrir hópinn og fékk ágætt lof fyrir, og að sjálfsögðu var einnig mikið sungið líkt og tíðkast á kvöldvökunum hér í Ölveri.

Þegar kvöldvakan var búin og komið var að kvöldkaffi var búið að loka matsalnum… Matsalnum hafði verið breytt í dýrindis kaffihús, kertaljós og kósýheit í tilefni þess að það var afmælisbarn í hópnum. Boðið var upp á afmælisköku með rjóma og djús. Michael Bublé sá um að róa stelpurnar fyrir smá sögustund en yfir kvöldkaffinu fengu stelpurnar að heyra fallega og kærleiksríka sögu fyrir svefninn.

Þrátt fyrir mikla spennu voru stelpurnar þreyttar eftir daginn og því komst fljótt ró í húsið.

Bestu kveðjur
Alla Rún, forstöðukona

Hádegismatur: Fiskibollur, kartöflur og salat
Kaffi: Bananabrauð og súkkulaðibitakökur
Kvöldmatur: Tómatsúpa með pasta og hvítlauksbrauð
Kvöldkaffi: Súkkulaðikremkaka