Dagurinn í dag er heimfarardagur en hann byrjaði með hefðbundnu sniði, morgunverði, fánahyllingu og síðan var pakkað niður í töskurnar. Á biblíulestrinum rifjuðum við upp hvað við höfum lært í vikunni og ræddum um hvað þær taka með sér heim í veganesti.

Farið var í foringjabrennó þar sem vinningslið brennókeppninnar keppti við foringjana en síðan fengu allar stelpurnar að keppa við starfsfólkið.

Í hádeginu grilluðum við  pylsur og nú hittumst við á lokastund. Þar fer fram verðlaunahátíð og sungið verður Ölverslagið 2021!

Rútan fer héðan kl.15 og verður komin á Holtaveg um kl.16.

Við þökkum fyrir frábæra daga hér í Ölveri og vonumst til að sjá alla aftur að ári.