Í Vatnaskógi og í Ölveri er boðið upp á flokka fyrir börn með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Börnin eru boðin sérstaklega velkomin í sumarbúðir þar sem þörfum þeirra verður mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt. Mun fleiri starfsmenn og færri börn en í hefðbundnum flokkum og því auðveldara að mæta hverju og einu barni á þeirra forsendum.

Umsóknir

Fyrirkomulag á skráningu í Gauraflokk og Stelpur í stuði í Ölveri er þannig:

  • Sótt er um dvöl á heimasíðu KFUM og KFUK eftir að sumarbúðaskráning opnar.  Farið verður yfir umsóknir í þeirri röð sem þær berast og með hliðsjón af markhópnum fyrir flokkinn. Öllum umsóknum verður svarað.
  • Forsvarsmenn flokksins yfirfara umsóknir og síðan er haft samband við foreldra þar sem þeim er tilkynnt hvort barnið þeirra kemst í flokkinn eða ekki.
  • Barnið skráð í flokkinn.
  • Gert er ráð fyrir að taka á móti 35 drengjum í Gauraflokk og allt að 20 stúlkur í Stelpur í stuði.

Stelpur í stuði í Ölveri

Ölver er frábær staður fyrir kraftmiklar og vaskar stúlkur. Þar lítil íþróttaskemma, fótboltavöllur, frábærar gönguleiðir, ævintýralegur skógur og margt fleira. Dagskráin í Ölveri er fjölbreytt og samanstendur af frjálsum dagskrártilboðum, kvöldvökum, kristinni fræðslu, söng, mikilli útiveru og reglulegum matartímum. Dagsskipulag Ölveri er afar heppilegt fyrir stúlkur með ADHD vegna þess að ramminn er skýr, þau hafa sitt sæti við sitt borð í matsalnum og hafa hver sína bænakonu/umsjónarkonu í svefnsal og herbergjum. Matartímar eru mjög reglulegir. Fjölmörg tilboð um viðfangsefni sem mæta ólíkum áhugasviðum.

Umsóknareyðublað fyrir Stelpur í stuði

Gauraflokkur í Vatnaskógi

Vatnaskógur er frábær staður fyrir kraftmikla og vaska drengi. Þar eru bátar, íþróttahús, fótboltavellir, frjálsíþróttasvæði, frábærar gönguleiðir, baðströnd, ævintýralegur skógur, bókasafn ofl. Dagskráin í Vatnaskógi er fjölbreytt og samanstendur af frjálsum dagskrártilboðum, kvöldvökum, kristinni fræðslu, söng, mikilli útiveru og reglulegum matartímum. Dagsskipulag Vatnaskógar er afar heppilegt fyrir drengi með ADHD vegna þess að ramminn er skýr, þeir hafa sitt sæti við sitt borð með sinn foringja. Hvert borð er í sama svefnsal og herbergjum. Matartímar eru mjög reglulegir. Fjölmörg tilboð um viðfangsefni sem mæta ólíkum áhugasviðum.

Umsóknareyðublað í Gauraflokk