Í gær var veisludagur. Stelpurnar vöknuðu eftir góðan svefn, fengu sér dýrindis morgunmat og héldu á morgunstund. Þar voru þær spenntar fyrir að syngja mörg Ölverslög og heyrðu söguna um Tvo syni. Eftir morgunstundina var brjóstsykursgerð þar sem þær gerðu fjórar tegundir af brjóstsykrum. Í hádegismat borðuð þær grjónagraut og voru mjög ánægðar með það. Eftir hádegismat var haldið í ferð að læknum og busluðu margar í læknum og skemmtu sér mjög vel.

Pottarnir voru opnir eftir kaffi ásamt föndurstund og fengu margar fléttur í hárið. Matsalurinn var svo skreyttur og fóru þær í fínni föt fyrir veislukvöldið. Í veislukvöldsmatinn var pizza sem þær höfðu sett sjálfar á fyrr um daginn. Á veislukvöldvökunni sáu þær svo foringjana leika listir sýnar og virtust stelpurnar hafa gaman af því. Eftir það kláruðu þær að horfa á The Lizzie McGuire Movie sem þær byrjuðu að horfa á eftir náttfatapartýið og fengu ís og ávexti í kvöldkaffið. Þær sofnuðu svo allar eftir frábæran veisludag.

Í dag er heimkomudagur og erum við að fara að klára að pakka, þær munu heyra smá sögu og syngja lög áður en þær fá pylsur og leggja svo af stað aftur í bæinn.

Við munum koma aftur á Holtaveg kl. 14 í dag.

 

Takk fyrir frábæran flokk og við hlökkum við að sjá sem flestar aftur eftir ár!

Ölverskveðjur,
Guðlaug og Ólöf forstöðukonur.