Hin árlega kaffisala Ölvers fer fram næsta sunnudag þann 23. ágúst frá kl. 14-17. Verð fyrir fullorðna er 2.000 kr. og 1.000 kr. fyrir börn.

Á kaffisölunni gefst tækifæri á að heimsækja yndislegt umhverfi og húsakost Ölvers, gæða sér á ljúffengum veitingum og styrkja um leið starfsemina þar.

Allir eru hjartanlega velkomnir á kaffisöluna!