Ölver býður upp á leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6-9 ára sem búsett eru á Akranesi, Borganesi og nánasta umhverfi. Þetta verða sannkölluð ævintýranámskeið í dásamlegu umhverfi og fallegri náttúru.

Rútuferðir verða frá Akraneskirkju kl. 08:30 en foreldrum er einnig frjálst að keyra börnin sín upp eftir og sækja.

Á leikjanámskeiðinu fá börnin hollan og góðan heimilismat, boðið verður upp á morgunmat og heitan mat í hádeginu og síðan verður kaffitími síðdegis áður en haldið verður heim  kl. 16:00 en áætlað er að rútan verði komin aftur að Akraneskirkju um kl.16:30.

Ef foreldrar vilja ræða við forstöðukonu/forstöðumann er hægt að hringja í síma: 433-8860. Símatími er á milli kl. 11:00-12:00 alla virka daga.

Fréttir og myndir úr sumarbúðunum eru hér á heimasíðunni og birtast daglega þegar sumarstarfið er í gangi.

Dæmi um dagskrá á leikjanámskeiði

09:00 Börnin koma með rútunni í Ölver
09:00 Morgunhressing
10:00  Samverustund á sal, fræðsla, föndur,  spjall, söngur og bænir
10:30 Dagskrá og/eða frjáls tími
12:00 Hádegismatur
12:30 Dagskrá, gönguferð, heitur pottur eða annað
15:00 Síðdegishressing
15:30 Hópleikir og frjáls tími
16:00 Heimferð

Farangur

Börnin þurfa að hafa meðferðis, hlý föt, góða skó, regnfatnað, stígvél, húfu, vettlinga, auka sokka og auka föt, hlýja sokka og/eða inniskó og sundföt og handklæði en á staðnum er heitur pottur. Allan útifatnað og aukaföt má koma með á mánudegi og geyma fram á föstudag.

Ef spurningar vakna endilega sendið póst á olver@kfum.is