
Mæðgna- og mæðginahelgi í Ölveri 9.-11. september: Dagskrá
Eftirfarandi er dagskrá fyrir mæðgna-og mæðginahelgi í Ölveri um komandi helgi 9.-11. september. Athugið að ekki er boðið upp á rútuferðir. Hér eru hugmyndir um helsta farangur sem gott er að hafa með sér: sæng eða svefnpoki, koddi, rúmföt, hlý [...]
Mæðgna – og mæðginahelgi í Ölveri: notalegur tími á fallegum stað
Helgina 9.-11. september verður mæðgna-og mæðginahelgi í sumarbúðunum Ölveri undir Hafnarfjalli. Þá geta mæður ásamt sonum og dætrum notið lífsins og alls þess sem Ölver hefur upp á að bjóða. Fjölmargt skemmtilegt verður í boð þessa helgi: morgunstundir fyrir mæður [...]
Kaffisala Ölvers á sunnudaginn, 21. ágúst kl.14 – 17 !
Á sunnudaginn, 21. ágúst, verður árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK í Ölveri frá kl.14-17. Gómsætar veitingar verða til sölu, starfsfólk sumarsins verður á svæðinu og aldrei að vita hvort Candyfloss - vél verði á staðnum fyrir yngstu kynslóðina! Verð [...]
Karneval í Ölveri
Karneval er þema dagsins. Dagurinn byrjaði með skrúðgöngu og lúðraþyt. Bollewoodmorgunleikfimi og fínheitum. Kökuskúltúrar, karamellugerð, skreytingarbrjálæði og naglalakk með skrauti einkenna þennan góða dag. Við erum endalaust heppnar með veður og stemningin eftir því. Gærdagurinn endaði í kósý dekri og [...]
Ice-step í listaflokki í Ölveri
Fyrsti dagur endaði með miklu fjöri í gær þar sem meðlimir frá Ice-step komu í heimsókn og dönsuðu fyrir stelpurnar og kenndu þeim svo nokkur spor. Á youtube má sjá sýnishorn af afrakstrinum: http://www.youtube.com/watch?v=JawVl1vcwMQ Dagur 2 fór síðan vel af [...]
Listaflokkur Ölvers fullur af stjörnum
Guðsgræn náttúran og góða veðrið tók á móti Listafokksstelpum Ölvers og er ekki hægt að óska sér betri byrjunar. Dansinn er hafinn, bollarnir málaðir og hönnunarhópurinn á haus. Semsagt allt á fullu en aðalatriðið er auðvitað að allir eru glaðir.
Listaflokkur í Ölveri hefst á morgun: nokkur laus pláss!
Á morgun, þriðjudaginn 9.ágúst hefst Listaflokkur í Ölveri, fyrir stúlkur á aldrinum 9-12 ára. Flokkurinn stendur yfir dagana 9.-12.ágúst. Þar verður fjölbreytt og spennandi dagskrá í boði en sérstök áhersla er lögð á listir og skapandi vinnu: Stomp og taktþjálfun, [...]
Nokkur laus pláss í Listaflokk Ölvers í næstu viku: Dans, tón – og leiklist, kökuskreytingar o.fl.!
Næsta þriðjudag, 9.ágúst, hefst Listaflokkur í Ölveri, og er ætlaður fyrir stúlkur á aldrinum 9-12 ára. Flokkurinn stendur yfir dagana 9.-12. ágúst. Í Listaflokk verður boðið upp á hefðbundna sumarbúðadagskrárliði eins og útivist, íþróttir, kvöldvökur, fræðslustundir og leik, en sérstök [...]