Fókusflokkur, dagur 2
Stelpurnar vöknuðu hressar og kátar í morgun og hófst dagurinn á morgunverði, þar sem boðið var upp á morgunkorn, súrmjólk og hafragraut. Þá var fáninn hylltur en það er rótgróin hefð hér í Ölveri. Eftir fánahyllingu tóku stelpurnar til í [...]
Fókusflokkur, komudagur
Það voru 36 dásamlegar stelpur sem mættu upp í Ölver í dag, tilbúnar í viðburðaríka og ævintýralega viku. Við byrjuðum á því að safnast saman inn í matsal þar sem starfsfólkið kynnti sig og farið var yfir helstu atriði. Þá [...]
Ævintýraflokkur – Dagur 5
Þá er það síðasta færslan frá þessum flokki. Eftir kaffi í gær var frjáls tími. Allar stelpurnar fóru í heita pottinn eða sturtu og svo var boðið upp á fastar fléttur fyrir þær sem vildu. Allar fóru í fínu fötin [...]
Ævintýraflokkur – Dagur 4
Þá er veisludagur runninn upp en áður en ég segi ykkur frá honum þá þarf ég að klára að segja ykkur frá gærdeginum. Ég skildi við ykkur þegar við vorum að fara í spennandi leik og sá leikur heitir Ævintýragangur. [...]
Ævintýraflokkur – Dagur 3
Ævintýrin halda áfram að gerast hér í Ölveri. Eftir hádegismatinn hófust Karnival-leikar Ölvers! Þar var boðið upp á alls konar þrautir sem stelpurnar tóku þátt í eins og til dæmis bollakökuskreytingar, ,,hvað er í kassanum?", grettu- og broskeppni og borðtenniskúlukast. [...]
Ævintýraflokkur – Dagur 2
Þá höldum við áfram þar sem frá var horfið 🙂 Eftir hádegismatinn í gær ákváðum við að nýta góða veðrið og skellltum okkur í gönguferð að læknum sem rennur hér rétt hjá Ölveri. Þar gátum við vaðið út í lækinn, [...]
Ævintýraflokkur – Dagur 1
Þá er loksins komið að því...Ævintýraflokkur II er hafinn! Hingað eru mættar 47 FRÁBÆRAR stelpur sem eru sko til í fjörið sem ævintýraflokkur hefur upp á að bjóða. Um leið og við mættum á staðinn í gær röðuðum við öllum [...]
Leikjaflokkur – Dagur 4 Brottfarardagur
Í dag er komið að brottfarardegi. Við hófum daginn á morgunmat, söng, morgunbæn og leikfimi við fína lagið hans Daða og Gagnamagnsins, 10 years. Að því loknu var haldið í herbergin aftur og stelpurnar pökkuðu niður dótinu sínu með hjálp [...]